TOP

Drekktu te og lífið verður betra!

480897_274605952616619_646045450_n

Þú verður farin að skála í grænu te eftir að hafa lesið þessa grein því ég ætla fara yfir með þér hvað þessi litla daglega rútína getur haft mikil heilsufarsleg áhrif á líkama þinn.

Tedrykkja hefur verið ríkjandi hefð til margra ára víðs vegar í heiminum og ekki að ástæðulausu enda mikil heilsubót. Jurtate, grænt te, svart te, hvítt te, oolong te, matcha te, melrose te, ávaxta te og svo mætti lengi telja því þetta er heill frumskógur af hinum mismunandi tegundum af tei og hér gildir að vanda valið og nota gott hráefni og gæði umfram allt. Allavega kýs ég að velja jurtate sem eru lífræn eða te úr jurtum sem vaxa villtar í staðinn fyrir telauf sem hafa verið úðuð með skordýraeitri.

Í þessari grein ætla ég að fókúsera á grænt te (Camellia sinensis) en hægt er að fá ýmsar útgáfur af grænu te og mitt uppáhald er hvítt te en það er unnið úr fyrstu litlu laufblöðunum af grænu teplöntunni. Grænt te inniheldur mikið magn andoxunarefna eins og catechins og polyphenol efni.

1. Lækkar kólesteról

Samkvæmt rannsókn sem birtist í American Journal of Clinical Nutrition í júní 2011 þá kom fram að grænt te getur lækkað bæði heildar kólesterólið og LDL “slæma” kólesterólið. Til að ná fram þessum áhrifum á blóðfituna þarf maður að drekka 5 bolla á dag af grænu te.

2. Dregur úr framleiðslu á kortisóli

Kortisól er stresshormónið okkar og stuðlar að aukinni kviðfitu og ýtir m.a. undir öldrun líkamans. Rannsókn sem gerð var árið 2006 sýndi fram á að með því að drekka 4 bolla af grænu te á dag í 6 vikur þá lækkaði kortisól magnið í líkamanum en það er ekki talið heilsusamlegt fyrir okkur að hafa kortisólið hátt til lengri tíma.

3. Bólgueyðandi

Virk efni í grænu te draga úr bólgumyndun í líkamanum en bólgur eru undirliggjandi þáttur í flestum sjúkdómum nú til dags eins og liðagigt, sykursýki og þunglyndi og því mikilvægt að nota náttúrulegar leiðir til að slá á bólgur. Bólgumyndun í líkamanum veldur líka vökvasöfnun og það að drekka grænt te hjálpar okkur að losa umfram bjúg og lætur okkur líða betur.

4. Meiri einbeiting og betra minni

Grænt te skerpir á hugsun og athygli enda inniheldur það koffín en það eru líka önnur plöntuefni í grænu tei sem stuðla að meiri fókus en þessi efni hafa áhrif á svokallaðar theta bylgjur í heilanum. Grænt te er jú orkugefandi eins og flestir vita. Þegar mikið liggur við í vinnunni er bara skella í sig einum grænum bolla og rúlla í gegnum þetta!

5. Dregur úr ofnæmi

Samkvæmt rannsókn sem gerð var á grænu te í Japan árið 2007 kom í ljós að EGCG polyphenol efni og andoxunarefnið quercetin sem finnast í grænu te hafa áhrif á ónæmisfrumur og geta dregið úr ónæmisviðbrögðum með því að draga úr histamín framleiðslu.

6. Eykur efnaskipti og brennslu

Grænt te hefur lengi verið notað í þyngdarstjórnun en grænt te hraðar efnaskiptum sem má aðallega rekja til koffín innihalds ásamt öðrum virkum efnum. Grænt te getur líka slegið á matarlyst og sykurlöngun.

7. Önnur heilsufarsleg áhrif

Tedrykkjufólk mælist með betri blóðgildi og eru heilsuhraustara. Að drekka te bætir vissulega heilsu okkar og ráðlagt er að drekka 2-3 bolla á dag sér til heilsubótar. Grænt te dregur t.d. úr áhættu á heilablóðfalli, magakrabbameini, sykursýki og getur komið í veg fyrir tannholdsbólgur.

Prófaðu þig áfram og njóttu áhrifanna af góðum tebolla…

Ásdís xoxo

what do you think?

Netfang þitt verður ekki birt.