Þessi uppskrift er svo einföld og fljótleg að maður skutlar í hana á núll einni! Ég geri mér oft svona bounty bita og reyni að eiga þá til í frystir þegar manni langar í eitthvað sætt með kaffinu eða eftir mat á góðum degi. Mæli líka með að prófið ykkur áfram með sætuefni en þið getið ýmist notað lífrænt hunang, agave, hlynsíróp eða notað sykurlaust síróp eins og Fibersirop, sem er nýtt lágkolvetna sætuefni. Þið getið ýmist skellt þessu í bita, rúllað í kúlur eða sett gúmmelaðið í sílikon kökuform og haft sem kökubotn og brætt svo súkkulaðið yfir. Ég geri það mjög oft að gera úr þessu kökubotn, læt þetta aðeins taka sig í frystinum, bræði súkkulaðið yfir og sker svo í alls konar ‘chunky’ passlega bita og set í gott box og aftur í frystir til að eiga til góða:) Mæli með Lily’s 70% extra dark eða Cavalier súkkulaðinu (bæði þessi sykurlaus) eða hvaða súkkulaði sem þið fílið, mér finnst líka 75% frá Naturata mjög gott.
2 bollar kókosmjöl
1 bolli fljótandi kókosolía
Smá vanilluduft eða vanillustevía ef vill
1-2 matskeiðar lífrænt agavesíróp eða hunang
150 gr dökkt lífrænt súkkulaði
Aðferð:
- Öllu hráefninu, nema súkkulaðinu, er hrært saman í stóra skál. Blöndunni er svo þjappað í form ofan á bökunarpappír. Þetta er haft í frysti í u.þ.b. 20-30 mínútur.
- Þá er „kakan“ tekin út úr frysti og skorin niður í hæfilega stóra bita. Súkkulaðið er svo brætt yfir vatnsbaði og bitunum velt upp úr súkkulaðinu.
- Bounty bitunum er þá raðað á bökunarpappír og hafðir aftur inni í frysti í nokkrar mínútur þar til súkkulaðið er storknað.
Njótið vel!
Ásdís xoxo
what do you think?