Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans og líkja má kollageni við lím sem heldur líkamanum saman. Kollagen sér til þess að vefir haldist sterkir saman og er að finna m.a. í vöðvum, beinum, húð, sinum og er einnig eitt aðal uppbyggingarefni húðar, hárs og nagla. Líkaminn framleiðir sjálfur kollagen sem fer minnkandi eftir 25 ára aldur. Þættir tengdir lífsstíl okkar sem hafa áhrif á minnkandi kollagen framleiðslu eru t.a.m. ofneysla á sykri og unnum kolvetnum, reykingar, óhófleg sólböð, skortur á ýmsum næringarefnum og kollagenríkri fæðu, langvarandi sjúkdómar og ýmsir meltingarkvillar sem geta hafa áhrif á upptöku og nýtingu kollagens.
Nokkrar ástæður fyrir því af hverju við ættum að nota kollagen fyrir heilsuna.
- Fyrir fallegri húð, neglur og hár.
Kollagen ásamt elastíni viðheldur teygjanleika og stinnleika húðarinnar. Kollagen hefur einnig mikil áhrif á heilbrigði hárs og nagla. Eyðing kollagens er ein helsta orsök hrukkumyndunar og öldrun húðarinnar en inntaka á kollageni getur mögulega hægt á hrukkumyndun og stuðlað að unglegri og frísklegri húð.
- Fyrir sterkari liði og stoðkerfi.
Kollagen getur stuðlað að auknum liðleika og heilbrigðari liðum og hægt á hrörnun stoðkerfisins. Kollagen er talið draga úr verkjum og bólgum í stoðkerfinu og er hefur mögulega jákvæð áhrif gegn gigt og öðrum stoðkerfisvandamálum og hægt að nota sem hluta af fyrirbyggjandi meðferð.
- Fyrir heilbrigt meltingarkerfi.
Kollagen er uppbyggjandi efni og getur verið gagnlegt sem viðgerðarefni fyrir skaddaðan lekan þarmavegg (e.leaky gut syndrome), sem er ástand sem getur skapast í meltingarvegi út frá inntöku sýklalyfja, slæmu mataræði, streitu o.fl þátta og sem hefur mikil áhrif á ónæmiskerfi okkar og meltingu svo fátt eitt sé nefnt. Lekur þarmaveggur er talinn vera undirliggjandi orsakaþáttur í bólgumyndun og veldur því að ómeltar fæðusameindir og toxísk úrgangsefni frá örverum úr meltingarvegi berast í gegnum þarmavegginn og út í líkamann og framkalla bólgumyndun sem getur komið fram víðs vegar um líkamann.
Kollagen er að finna aðallega í dýraafurðum s.s. kjöti, fisk, kjúkling, beinaseyði og eggjahvítum. Kollagen má einnig taka inn í duftformi og mikilvægt er að það sé ‘hydrolyzed collagen’ en þá hafa amínósýrurnar verið brotnar niður og frásogast mun betur í meltingarvegi. Einnig er gott að taka C vítamín aukalega eða passa upp á fá ríkulegt magn af C vítamíni úr fæðunni samhliða kollagen inntöku þar sem það gegnir mikilvægu hlutverki í framleiðslu og nýtingu kollagens. Hreint kollagen í duftformi er t.d. hægt að bæta út í safa, kaffi, grauta, jógúrt, þeytinga og út í bakstur.
Kakó kollagen latte
1 b heitt kaffi eða soðið vatn
Smá dass möndlumjólk Isola
½ msk kakóduft Himnesk Hollusta
½ tsk kanill Himnesk Hollusta
1 msk kollagen protein Now
½ msk chia fræ Himnesk Hollusta
3 dr English toffee stevia Now
½ msk MCT olía mocha/chocolate Now
Öllu skellt í blandara.
Ásdís grasalæknir